fimmtudagur, september 28, 2006

 

ekkert að frétta....

Vegna fjölda áskorana þá ákvað ég að halda áfram þessu gaufi mínu. Það strandar svo sem ekki á andagiftinni ! heldur því að við erum svo löt að hlaða myndum inná tölvuna og einhvern veginn finnst mér að það þurfi að fylgja myndir með blogginu! en ég læt þetta flakka myndalaust í þetta sinn...

Það gerist nú samt ekki margt - við Salka Nóa höfum verið að spóka okkur í bænum í blíðviðrinu undanfarið og dregur þá helst til tíðinda ferðir niður á tjörn að gefa öndum (svönum, gæsum, mávum og svo framvegis) spurning hvernig Gísla Marteini gengur að skjóta mávana! En við mæðgur erum búnar að finna besta staðinn til að gefa öndunum - það er af brúnni. Sóldís Lydía er nebblega mikill snyrtipinni og finnst óttalega subbulegt í kringum þessar endur á hefðbundunum gjafsvæðum- svo er auðvitað bónus að það eru engar gæsir að vappa uppi á brúnni! allavega ekki þessar hefðbundnu gæsir!

Annað sem hefur gerst markvert í lífi bárugötubúa er að Salka Nóa er byrjuð að fá fasta fæðu!! ef fasta skyldi kalla. En þann 16. september sl rann upp hinn svokallaði grautardagur! Allir voru yfir sig spenntir, búið að bíða lengi eftir þessum mikla viðburði en eins og læknirinn hennar sagði í 6 mánaða skoðun - menn geta ekki lifað á mjólk til æviloka!! Nú þegar ég segi að við höfum öll verið yfir okkur spennt þá er ég í raun að tala um okkur sem vitum hvað föst fæða er - unganum fannst þetta nú ekki mjög merkilegt og skyldi ekkert í öllu hafaríinu. Atburðurinn var sem sagt rækilega festur á filmu og myndaður á videókameru! Salkan kippti sér nú ekki upp við þetta allt saman en smakkaði á grautnum úr hendi stóru systur svona eins og til að gera okkur til geðs. Sóldís fékk það heiðurshlutverk að gefa fyrstu skeiðina ög fannst nú öruggara að gera það ber að ofan - svona smábörn eru jú svo subbuleg sjáið til! Síðan þá er búið að smakka á gulrótarmauki og rann það bara nokkuð ljúflega niður.

Nú gólar téður ungi svo ég held galvösk áfram síðar ; )

föstudagur, september 15, 2006

 
Jæja gott fólk - nú ætla ég að blogga! mest setja inn myndir af bárugötu prinsessunum fyrir þá sem ekki fá að njóta samvista við þær dags daglega ; )

Þetta er frumraun svo ég lofa ekki neinu gáfulegu né frumlegu en reyni kannski að vera pínulítið skemmtileg!

Fylgist með gott fólk

Hér koma myndir af dætrunum:
Salka Nóa flott í heimahekluðu!!


Saman í baði!


Stóra systir sér um tannhirðuna - sú stutta komin með 2 tennur og veit hvað hún á að gera við þær (ái!)












Sóldís er alsæl með haustið því þá byrjar ballettinn!! hún er áberandi langbest að mati móðurinnar.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?