mánudagur, október 09, 2006

 

Grautarspónn























Grautur var gefinn 16. september 2006


Sóldís Lydía fékk þann heiður að gefa fyrstu skeiðina. Við það tilefni fannst henni skynsamlegast að vera ber að ofan, hún hafði frétt að smábörn væru afar subbuleg við grautariðju ; )

Þetta minnti mjög á atvikið þegar Sóldís var að hjálpa mömmu sinni að hengja upp þvott af litlu systur sinni og sótti sér vettlinga þar sem henni fannst nú þvotturinn ansi blautur og kaldur viðkomu!

 

Veitingahúsaferð





Jæja - litla fjölskyldan á Bárunni ákvað að gera sér dagamun þann 1. október í tilefni mánðarmóta og fara út að borða. Hele familíen, kl. 18.30 ; ) alltaf jafn bjartsýn. Nú tilraunin gekk ágætlega - við fórum á Bistro Geysi sem er í Geysishúsinu fyrir ofan Sjávarkjallarann. Nýr staður og nokkuð flottur - þeas nýr og huggulegur ekki alltof dýr og fínn en góður matur. Akkúrat eitthvað fyrir fjölskyldufólk. Ekki þurfti að hafa áhyggjur af eldri dótturinni enda hefur hún ætíð verið mjög kaffi og veitingahúsavænt barn. Sú styttri var nú ekki til mikilla armæðu en eitthvað fannst móðurinni heyrast of mikið í henni - trúlega bara ofurviðkvæmni! en það endaði svo að móðirin braut rauðvínsglasið sitt yfir allt sem eldra barnið var búið að lita og þá fórum við bara! Ágætis tilraun samt. Sendi myndir meðan allt lék í lyndi







This page is powered by Blogger. Isn't yours?